18.12.1987
Efri deild: 29. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2515 í B-deild Alþingistíðinda. (1865)

180. mál, gildistaka staðgreiðslu opinberra gjalda

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir undirtektir hans og treysti því að á málinu verði tekið þegar frv. um tekju- og eignarskatt kemur til lokameðferðar í Nd. sem ég hygg að sé áður en langur tími líður.