18.12.1987
Neðri deild: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2543 í B-deild Alþingistíðinda. (1948)

Uppprentun þingskjala

Forseti (Jón Kristjánsson):

Vegna orða hv. 2. þm. Vestf. tek ég fram að að sjálfsögðu er forseta ljós alvara þess máls þegar þingskjöl eru prentuð út og það munu verða gerðar ráðstafanir til þess að þessi lagatexti fái hér eðlilega meðferð og verði afgreiddur í samræmi við vilja þessarar hv. deildar.