18.12.1987
Neðri deild: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2544 í B-deild Alþingistíðinda. (1950)
Uppprentun þingskjala
Forseti (Jón Kristjánsson):
Í þessu sambandi vil ég geta þess að hér var aðeins verið að upplýsa um aðdraganda þessa máls, en ég tek þessar umræður ekki þannig að hér hafi ábyrgðinni verið varpað yfir á starfsfólk þingsins. Ég tek undir það sem hv. 2. þm. Austurl. sagði að það vinnur við mjög erfið skilyrði og sá starfsmaður sem hér um ræðir er þekktur að nákvæmni og samviskusemi þannig að ég vil ekki túlka þessar umræður þannig að ábyrgð hafi verið varpað yfir á hann í þessu efni og ég vil fullyrða það að hv. þm. er fullkomlega ljós ábyrgð sín á þeim málum sem afgreidd eru út úr þessari hv. deild.