18.12.1987
Neðri deild: 30. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2544 í B-deild Alþingistíðinda. (1953)

Uppprentun þingskjala

Alexander Stefánsson:

Herra forseti. Það hefur komið fram að um mistök hafi verið að ræða sem hafa farið fram hjá mönnum og mér finnst eðlilegt og mun hafa samráð við nefndarmenn í félmn. Nd. um það að við ræðum þetta við formann félmn. Ed. þannig að þetta mál verði afgreitt endanlega frá þinginu og um það verði séð að frv. fái rétta þinglega meðferð.