21.10.1987
Neðri deild: 5. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í B-deild Alþingistíðinda. (201)

Frumvarp um leyfi til slátrunar

Forseti (Jón Kristjánsson):

Þess skal getið vegna þeirrar umræðu um þingsköp sem hér hefur farið fram að málið er fram komið með venjulegum hætti og tilskildir frestir eru liðnir til þess að það megi koma hér á dagskrá. Skrifstofa þingsins hefur yfirfarið þetta mál eins og önnur frumvörp sem fram koma.