18.12.1987
Neðri deild: 31. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 2653 í B-deild Alþingistíðinda. (2025)
137. mál, launaskattur
Albert Guðmundsson:
Hæstv. forseti. Ég verð að skilja þögn ráðherranna, þeirra sem eru viðstaddir, þannig að gengislækkun sé nálægt, hún sé fram undan. Staðreyndin er sú að það er búið að draga verulega úr endurgreiðslu söluskatts til undirstöðuatvinnuveganna, það er búið að bæta launaskatti á skv. því frv. sem hér liggur fyrir sem samtals gerir líklega um 1000 millj. viðbótarálag á undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar fyrst og fremst þó það komi niður á fleiri. Nú lít ég svo á að gengislækkun sé fram undan. Það fer ekkert á milli mála. Þögn ráðherranna segir að samviska þeirra leyfir þeim ekki að hafna því. Fastgengisstefnan er „fallít“, ef ég má orða það þannig, og þeir standa ekki lengur upp og verja hana. Gengið er fallið, spurning klukkan hvað það fellur, dagsetningin er komin. Og fram undan eru launahækkanir, fram undan er kjarabarátta. Ég segi: Þið hafið unnið vel fyrir kaupinu þennan stutta tíma sem þið hafið setið við völd.