22.12.1987
Efri deild: 36. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3011 í B-deild Alþingistíðinda. (2163)

181. mál, stjórn fiskveiða

Júlíus Sólnes:

Herra forseti. Það kann að vera nokkur ósigur sem felst í því að sjá frv. verða samþykkt í hv. Ed. eftir að við höfum staðið meira eða minna í ræðustóli rúmlega 24 tíma. En ég held samt sem áður að það sé enginn ósigur í því fólginn. Við höfum bent á mörg atriði þess og sýnt fram á og sannað að frv. er rangt og ég segi nei.