21.12.1987
Neðri deild: 34. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3108 í B-deild Alþingistíðinda. (2179)

196. mál, söluskattur

Forseti (Óli Þ. Guðbjartsson):

Þetta er rétt sem fram kom hjá hv. þm. Það eru fjórir á mælendaskrá núna og ætlunin var að slíta nú þessum fundi og boða síðan til annars fundar eftir um það bil 15 mínútur, en hæstv. forsrh. hefur kvatt sér hljóðs og tekur nú til máls.