28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3209 í B-deild Alþingistíðinda. (2281)

1. mál, fjárlög 1988

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Mér skilst á þessum lið að fyrst hafi endurgreiðsla á söluskatti í sjávarútvegi verið skorin niður um helming og síðan sé verið að saxa af þeim helming, sem á að endurgreiða til sjávarútvegsins, einar 30 millj. til að standa undir kostnaði við Útflutningsráð Íslands sem annars kæmi úr ríkissjóði. Ég segi nei.