28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3213 í B-deild Alþingistíðinda. (2297)

1. mál, fjárlög 1988

Hjörleifur Guttormsson:

Herra forseti. Ég tek undir orð hv. 2. þm. Vestf. Ólafs Þ. Þórðarsonar. Það er mjög erfitt að taka afstöðu til þessa máls hér í atkvæðagreiðslu um frv. eftir að upplýst hefur verið það sem hann greinir frá varðandi tölul. 4.27 í heimildargrein frv. og upplýst er af ráðherrum fjármála og landbúnaðar að þessi gjörningur sé þegar orðinn sem þarna er óskað eftir heimild á af hálfu ráðuneytanna. Ég vek athygli á þessu og mér finnst þetta ekki eðlilega að verki verið og ætla ekki að ræða þetta efnislega að sinni.