28.12.1987
Sameinað þing: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3214 í B-deild Alþingistíðinda. (2301)

1. mál, fjárlög 1988

Albert Guðmundsson:

Hæstv. forseti. Í stuttu máli hefur ríkisstjórnin breytt stefnu sinni frá því að vinna niður halla fjárlaganna á þremur árum í það að ná halla fjárlaga niður á einu ári. Ég tel að með þessu sé ríkisstjórnin að færa halla fjárlaga og ríkissjóðs yfir á heimilin og atvinnuvegina sem þola ekki frekari álögur en þegar er orðið og ég segi því nei.