28.12.1987
Neðri deild: 38. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3319 í B-deild Alþingistíðinda. (2328)
181. mál, stjórn fiskveiða
Kristín Einarsdóttir:
Herra forseti. Það er nú orðið langt liðið á nóttina og þreyta farin að segja til sín, en mig langar til að vekja athygli hv. þm., og þó sérstaklega þeirra sem eru í sjútvn. deildarinnar, á skýrslu sem ég hef undir höndum frá Hafrannsóknastofnun. Það eru að vísu mjög fáir eftir hérna. Ég veit ekki hvort það tekur því að tala yfirleitt þegar meiri hluti þm. er heima hjá sér og spurning hvort ekki ætti að vekja fólk til að það geti hlustað á það sem við höfum hér fram að færa.
Þessi skýrsla, sem ég er hér með, er fjölritið nr. 11 frá stofnuninni og heitir Nytjastofnar sjávar og umhverfisþættir 1987. Aflahorfur 1988“. Á bls. 8 í þessari ágætu skýrslu stendur, með leyfi forseta, en þar er verið að ræða um ástand nytjastofna og talað um þorskinn:
„Aflinn dreifist á 4–8 ára þorsk. Mest var hlutdeild sjö ára þorsks, þ.e. árgangur 1980, með 28% fjölda en 32% að þyngd. Næstalgengastur í vertíðaraflanum var fjögurra ára þorskur, árgangur 1983, 22% miðað við fjölda en um 9% miðað við þyngd vertíðaraflans. Miðað við fjölda var sex ára fiskur þriðji í röðinni með 17% hlutdeild. Hlutdeild fimm og átta ára þorsks var 11% og 12% miðað við fjölda. Hlutdeild níu ára og eldri fisks var sáralítil eða innan við 10% að fjölda.“
Það kemur líka seinna fram að ári seinna er hlutdeild sjö ára fisks í fjölda 13% þannig að það er yfirleitt talað um í þessari skýrslu hve margir einstaklingar eru af hverjum árgangi.
Aðeins síðar, á bls. 9, stendur, með leyfi forseta:
„Gert er ráð fyrir að annar hver fiskur sem veiðist árið 1987 verði annaðhvort þriggja eða fjögurra ára þorskur, árgangarnir 1984 og 1983. Fari afli fram úr 36 000 tonnum á árinu 1987 mun það fyrst og fremst verða til þess að hlutfall smáfisks í afla eykst enn frá því sem gert er ráð fyrir. Þetta er í góðu samræmi við spána sem gerð var í september 1986. Þó virðist veiði smáfisks verða enn meiri en þá var gert ráð fyrir. Þetta er vegna þess að 1983-árgangurinn er að hluta til vaxinn upp fyrir viðmiðunarmörkin.“
Það kemur hér fram að gert er ráð fyrir að hlutur smáfisks verði meiri í afla í ár og næsta ár. Það hefur einnig komið fram í umræðunni um þetta mál að þm. hafa áhyggjur af smáfiskadrápi. Ég hef svo sannarlega haft áhyggjur af því líka, en þegar ég fer að glugga í þessa skýrslu fer ég að velta vöngum.
Þá vildi ég líka vekja athygli á töflu á bls. 32 í þessari sömu skýrslu, töflu nr. 16.1. Þessi tafla sýnir fjölda þorska í þúsundum landaðra í aldursflokkum árabilið 1972–1986. Þannig er alltaf verið að tala um fjölda þorska. Ef farið er að kanna aðeins nánar sést að árið 1983 veiddust 3,5 millj. einstaklingar sem voru þriggja ára. Árið 1984 voru þeir sem voru þá fjögurra ára 31 millj. Árið 1985 eru þeir orðnir fimm ára. Þá veiðast 35 millj. Og árið 1986 eru þeir rúmar 30 millj. Á þessu sést að fjöldi einstaklinga er mjög hár úr þessum sama árgangi. Þetta er allt sami árgangurinn. Það virðist ekki neitt benda til þess að einstaklingum fækki verulega ef ég tek dæmi um einn árgang.
Ég vildi vekja athygli á þessu og einnig á aflatölum fyrir 1986, en mér sýnist að ef litið er á þær sé tilefni til bjartsýni ef ég les rétt úr tölunum sem þar standa. Það má vel vera að hægt sé að lesa eitthvað neikvætt út úr því sem þar stendur, en mér er fyrirmunað að lesa annað út úr þessum tölum en að nýliðunin sé mikil og ekki sé ástæða til að óttast ofveiði.
Ég tel ástæðu til að benda hv. sjútvn. á þessa skýrslu Hafrannsóknastofnunar og þá ekki síst þessa umrædda töflu nr. 16.1. Það er líka ýmislegt fleira sem er hægt að lesa út úr þessari töflu held ég. Ég er ekki búin að hafa mjög langan tíma til að skoða skýrsluna fremur en annað varðandi frv. sem við höfum fengið allt of seint til meðferðar.
Ég tek undir með hv. 1. þm. Vestf., formanni sjútvn. Nd., að ekki sé hægt að ætlast til þess að frv. verði afgreitt á þeim fáu dögum sem eru til áramóta. Ég veit ekki hvort á að telja þá tvo eða þrjá. Það fer eftir því hvað fólk ætlast til að við séum hérna lengi. Það eru kannski margir klukkutímar ef það er ætlast til þess að við séum hérna allan sólarhringinn.
Ég vildi í þessum umgangi einungis vekja athygli á þessu og benda á að það er ýmislegt sem þyrfti að fara betur ofan í ef þetta mál ætti að fá eðlilega umfjöllun í deildinni.