29.12.1987
Efri deild: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3329 í B-deild Alþingistíðinda. (2338)

206. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Fyrir þinginu liggur sem 8. mál þess frv. til l. um breytingu á lögum um tekju- og eignarskatt, flutt af mér og hv. þm. Margréti Frímannsdóttur og Skúla Alexanderssyni. Sú grein sem hér er gerð tillaga um af hæstv. ríkisstjórn er upp úr því frv. Ég fagna því og segi já, herra forseti.