29.12.1987
Efri deild: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3330 í B-deild Alþingistíðinda. (2341)
127. mál, framleiðsla og sala á búvörum
Frsm. minni hl. landbn. (Danfríður Skarphéðinsdóttir):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. frá minni hl. landbn. á þskj. 396 við frv. til um breytingu á lögum nr. 46 27. júní 1985, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum ásamt brtt. Nál. hljóðar svo, með leyfi forseta:
„Frv. þetta miðar annars vegar að því að draga úr innflutningi á niðurgreiddu kjarnfóðri og að efla notkun íslensks kjarnfóðurs og hins vegar að afla tekna í ríkissjóð.
Minni hl. getur ekki fallist á skattlagningu dýrafóðurs í tekjuöflunarskyni fyrir ríkissjóð. Breytingartillagan, sem meiri hl. ber fram, kemur í framhaldi af þeirri umdeildu ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja 25% söluskatt á matvæli. Hún felur í sér tímabundnar mildandi aðgerðir vegna 25% skattlagningar á brýnustu nauðsynjar fólks þannig að verðhækkanir á afurðum svína, nauta og fugla verði um 10%.
Minni hl. hefur frá upphafi lýst sig andvígan matarskattinum og getur því ekki fallist á þá hugmynd, sem fram kemur í breytingartillögunni, að greiða að hluta til ofantaldar afurðir niður í aðeins eitt ár.“
Undir þetta ritar auk mín hv. 4. þm. Vesturl. Skúli Alexandersson.
Herra forseti. Ég ítreka að að sjálfsögðu styðjum við brtt. sem felur í sér þó ekki sé nema tímabundnar mildandi aðgerðir til að draga úr þeim áhrifum sem 25% skattlagning á matvæli mun hafa í för með sér.