30.12.1987
Efri deild: 45. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3404 í B-deild Alþingistíðinda. (2382)

54. mál, útflutningsleyfi

Frsm, meiri hl. fjh.- og viðskn. (Halldór Blöndal):

Mér falla afskaplega vel, hæstv. forseti, þessi árslok í deildinni að hér skuli allt vera í einingu andans og bandi friðarins og stendur síst á mér að taka undir að við hittumst þegar eftir áramótin og athugum nákvæmlega þær brtt. sem fram hafa komið og förum aftur yfir þetta mál. Ég tek sem sagt undir það sem hæstv. utanrrh. og hv. 7. þm. Reykv. sögðu um þau efni.