30.12.1987
Efri deild: 45. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3405 í B-deild Alþingistíðinda. (2386)

40. mál, Útflutningsráð Íslands

Frsm. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. (Svavar Gestsson):

Virðulegur forseti. Um þetta mál hef ég lagt fram sérstakt nál. 1. minni hl. fjh.- og viðskn. þar sem lagt er til að frv. verði hafnað með sömu rökum og ég rakti í nál. um frv. til laga um útflutningsleyfi o.fl. Tel ég ekki ástæðu til að fara frekari orðum um það, virðulegur forseti, með tilliti til þeirra umræðna sem fram hafa farið um þessi mál í deildinni núna á síðasta klukkutíma varðandi framgang þeirra.