30.12.1987
Neðri deild: 40. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3413 í B-deild Alþingistíðinda. (2400)

197. mál, vörugjald

Forseti (Jón Kristjánsson):

Varðandi þessa umræðu vil ég geta þess að að sjálfsögðu hefur aldrei staðið til að halda áfram umræðum í þeim málum þar sem þskj. minni hl. liggja ekki fyrir. Minni hl. fær að sjálfsögðu tíma til að skila þeim. Ég mun í samræmi við það sem hér hefur komið fram þá ekki taka 2. dagskrármálið til umræðu fyrr en nál. minni hl. liggur fyrir. En ég endurtek það, sem ég áður sagði, að ég vænti þess, af því að samkomulag er um fyrsta dagskrármálið, að við getum rætt það á þessum fundi.