30.12.1987
Neðri deild: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3442 í B-deild Alþingistíðinda. (2420)

127. mál, framleiðsla og sala á búvörum

Frsm. meiri hl. landbn. (Árni Gunnarsson):

Herra forseti. Landbn. Nd. fékk til umfjöllunar frv. til l. um breytingu á lögum nr. 46 27. júní 1985, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum. Nefndin hefur athugað frv. sem flutt er til staðfestingar á brbl. sem gefin voru út 10. júlí 1987.

Nefndin klofnaði við afgreiðslu málsins. Meiri hl. leggur til að frv. verði samþykkt með þeirri breytingu sem gerð var á frv. í Ed. Vísað er til fskj. með nál. meiri hl. landbn. Ed. á þskj. 386.

Undir þetta nál. rita nöfn sín Árni Gunnarsson, Alexander Stefánsson, Pálmi Jónsson, Páll Pétursson og Eggert Haukdal.