30.12.1987
Neðri deild: 42. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3501 í B-deild Alþingistíðinda. (2456)

198. mál, tollalög

Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Steingrímur J. Sigfússon):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. minni hl. fjh- og viðskn. sem er á þskj. 453. Þetta er ítarlegt, og vel unnið og vandað nál. og ég get vísað í það um allan rökstuðning fyrir afstöðu minni hl. og niðurstöðu sem er að þetta mál sé ekki nægjanlega vel unnið og því sé réttast að vísa því til ríkisstjórnarinnar til betri vinnslu.

Undir þetta nál. rita frsm., sem hér stendur, og Kristín Halldórsdóttir. Hv. þm. Ingi Björn Albertsson hefur setið fundi fjh.- og viðskn. Nd. og tekið þátt í störfum nefndarinnar og stendur að nál. með minni hl.