31.12.1987
Efri deild: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3506 í B-deild Alþingistíðinda. (2480)

197. mál, vörugjald

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Í samræmi við þá afstöðu sem ég hafði þegar þetta mál var til meðferðar hér í deildinni fyrir nokkrum dögum og lýsti því þá yfir að ég teldi að ríkisstjórnin og ríkisstjórnarmeirihlutinn hlytu ein að bera ábyrgð á þessu máli eins og til þess er stofnað greiði ég ekki atkvæði.