31.12.1987
Sameinað þing: 39. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3508 í B-deild Alþingistíðinda. (2487)

Nýársóskir í sameinuðu Alþingi

Steingrímur J. Sigfússon:

Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. forseta fyrir hlý orð og góðar óskir í garð okkar alþm. Ég vil óska honum og fjölskyldu hans gleðilegs nýs árs og þakka honum fyrir góða forustu um þingstörfin hér á þessu ári sem senn er liðið. Ég vil leyfa mér að vænta þess að við megum öll hittast vel haldin til starfa hér á nýju ári og ég vil biðja hv. alþm. um að taka undir óskir mínar með því að rísa úr sætum. — [Þingmenn risu úr sætum.]