05.01.1988
Neðri deild: 46. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3587 í B-deild Alþingistíðinda. (2525)

196. mál, söluskattur

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Meiri hl. virðist alls ekki vera öruggur um að hér sé nægilega vel frá málum gengið. Efasemdir þeirra virðast vera töluverðar og afstaðan virðist byggja á því að brtt. er komin frá fulltrúa stjórnarandstöðu. Úr því að menn eru ekki fyllilega vissir um að hér sé nógu vel frá málum gengið segi ég já.