06.01.1988
Neðri deild: 47. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3696 í B-deild Alþingistíðinda. (2583)

181. mál, stjórn fiskveiða

Albert Guðmundsson:

Ég þakka hæstv. forseta fyrir þau svör sem hann gaf við spurningum mínum í tilefni af þeim ummælum utanrrh. sem birtust í Tímanum 30. des. sl. Ég skoða svör forseta á þann hátt að Alþingi geti haldið áfram málefnalegum umræðum um dagskrármálið vegna þess að forseti lýsir ummæli tveggja ráðherra ríkisstjórnarinnar ómerk.