07.01.1988
Neðri deild: 48. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3740 í B-deild Alþingistíðinda. (2610)

181. mál, stjórn fiskveiða

Hreggviður Jónsson:

Hæstv. forseti. Hér liggur fyrir brtt. frá Borgarafl. um botnfiskveiðar báta minni en 10 brl. Við leggjum til að grein fyrri laga sé óbreytt. Við höfum ekki viljað auka vald ráðherra neitt frekar eins og var gert ráð fyrir í till. á undan. Okkur þykir vald ráðherra nægilega mikið fyrir og leggjum því til að greinin verði borin upp óbreytt eins og hún var í fyrri lögum. Ég segi já.