07.01.1988
Neðri deild: 48. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3741 í B-deild Alþingistíðinda. (2617)

181. mál, stjórn fiskveiða

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Eins og allir vita er verð á fiskiskipum mjög hátt og sala þeirra oft og tíðum yfir tryggingarmati. Ég tel að ef þetta yrði samþykkt gæti skapast mikil óvissa varðandi veð í skipum hjá þeim sem ættu þar aftarlega veðrétt og segi því nei.