07.01.1988
Neðri deild: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3748 í B-deild Alþingistíðinda. (2653)
Afgreiðsla þingmannafrumvarpa
Forseti (Jón Kristjánsson):
Varðandi orð hv. 13. þm. Reykv. vil ég geta um að núna í hléinu átti ég viðræður við formenn þingflokka stjórnarandstöðunnar og skýrði þeim frá því að ég óskaði eftir því að fá samkomulag eða sæmilegan framgangsmáta um að klára 3. umr. um stjórn fiskveiða vegna þess að málið þarf að fara til Ed. til umræðu. Þetta mál er þannig vaxið að vegna ástands í sjávarútvegi verður það að komast áfram sem fyrst. Síðan þarf að koma lánsfjárlögum til nefndar þannig að nefnd geti unnið í því máli og gert það þá næstu daga. Ef þetta tækist í dag, sem ég tel ekkert útilokað og það megi auðveldlega gera það án þess að hefta málfrelsi manna á neinn hátt, tel ég að það sé komið færi á því að færa þinghald í eðlilegt horf og setja upp dagskrá eftir þeim málum sem fyrir liggja í hv. Alþingi.
Ég vil skýra hv. þingdeildarmönnum frá þessu og þessari ósk minni til þingflokksformanna þó ég viti að þeir komi henni á framfæri til sinna þingflokka. Ég tel að ef við ljúkum þessu í dag, sem ég tel vel mögulegt, þurfum við ekki að halda fund í Nd. á morgun og ekki fyrr en eftir helgi. Ég tel vel mögulegt að koma því þinghaldi í eðlilegt horf svo framarlega sem takist að koma þessum málum áleiðis sem eru bæði mjög aðkallandi.