07.01.1988
Neðri deild: 49. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3783 í B-deild Alþingistíðinda. (2687)

181. mál, stjórn fiskveiða

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Þm. Alþb. hafa flutt margar veigamiklar brtt. við þetta frv. til l. um stjórn fiskveiða í samræmi við þá fiskveiðistefnu sem flokkurinn hefur mótað. Allar þessar brtt. sem og flestar þær brtt. aðrar sem til bóta hefðu verið hafa nú verið felldar. Þetta frv., sem snertir ríkulega hag allra landsmanna og landsbyggðarinnar sérstaklega, er því enn svo meingallað að þm. Alþb. geta ekki staðið að lögfestingu þess. Ég segi nei.