12.01.1988
Neðri deild: 52. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3959 í B-deild Alþingistíðinda. (2750)

63. mál, lánsfjárlög 1988

Matthías Bjarnason:

Herra forseti. Út af fyrir sig get ég fellt mig við að greiða atkvæði með þessari tillögu, en þó því aðeins að ég treysti því að hæstv. fjmrh. og ríkisstjórn meini ekki að það eigi að friða alla refi og því síður minka á árinu 1988. Ég segi já.