12.01.1988
Neðri deild: 52. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 3960 í B-deild Alþingistíðinda. (2754)

Frumvarp til lánsfjárlaga

Forseti (Jón Kristjánsson):

Þar sem ég túlka orð hv. 4. þm. Norðurl. e. þannig að það muni verða umtalsverðar umræður um málið tek ég það sem svo að það muni ekki gerlegt að ljúka málinu hér nú þegar eftir 2. umr. á þessum fundi. Ég mun því slíta þessum fundi, en vil biðja formenn þingflokka að hitta mig stutta stund eftir að fundi er lokið og ráðgast um tíma á morgunfundinum og gera sér í hugarlund hvað umræða tekur langan tíma. Fundir verða þá boðaðir símleiðis þegar fundartími er ákveðinn.