14.01.1988
Efri deild: 53. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4043 í B-deild Alþingistíðinda. (2816)

63. mál, lánsfjárlög 1988

Guðmundur Ágústsson:

Hæstv. forseti. Ég veit ekki hvað endurskoðunin breytir rekstrarafkomu Ríkisútvarpsins á þessu ári. Þó svo að endurskoðun sé í gangi þá er ljóst að ný útvarpslög taka ekki gildi fyrr en á næsta ári. Það sem við erum að tala um hér er rekstrarafkoman fyrir árið 1988 og sá brýni vandi sem er hjá Ríkisútvarpinu þetta árið. Því segi ég já.