14.01.1988
Sameinað þing: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4052 í B-deild Alþingistíðinda. (2831)
209. mál, starfsmenn á vernduðum vinnustöðum
Hreggviður Jónsson:
Hæstv. forseti. Ég fagna þessari fsp. og jafnframt svörum hæstv. ráðherra. Það kemur í ljós í svörum hæstv. ráðherra að þessum málum er kannski ábótavant, en ég veit að ráðherra mun hafa fullan hug á að bæta úr því ef hægt er. Við vitum að á vernduðum vinnustöðum hefur það fólk sem byrjar sín störf þar ekki átt aðild að lífeyrissjóðum. Ástæðan mun vafalaust vera sú að það eru ekki mörg ár síðan þessi starfsemi var tekin upp og hefur verið í þróun síðan. Ég er sannfærður um að það mun verða bætt úr þessu með tíð og tíma. Ég treysti félmrh. fullkomlega til að standa vel að þessum málum og ég fagna svörum hennar og eins þessari ágætu fsp.