14.01.1988
Sameinað þing: 41. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4059 í B-deild Alþingistíðinda. (2841)

222. mál, vísitala framfærslukostnaðar

Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):

Hæstv. forseti. Ég vildi aðeins segja að lokum um þessa fsp. og síðari ræðu fyrirspyrjandans, að það er að sjálfsögðu rétt að að því leyti sem miðað er við vísitölu framfærslukostnaðar og þróun hennar í kjarasamningum að einhverju leyti er hún kjarasamningamál, en sem mælitæki á verðlagsþróun í landinu er hún það ekki. Til dæmis er vel hugsanlegt að menn vildu hafa fleiri en eitt mælitæki á lofti og á margan hátt eðlilegt.

En ég vildi eingöngu ítreka að að því leyti sem um hlutlæga mælingu á verðlagsþróun er að ræða er hún ekki kjarasamningamál.