04.02.1988
Sameinað þing: 43. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4206 í B-deild Alþingistíðinda. (2954)

230. mál, innflutningur á gölluðum Subaru-bifreiðum

Fyrirspyrjandi (Eggert Haukdal):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin en þau voru í samræmi við það, að það er í raun og veru erfitt að svara í þessu máli eins og málatilbúnaður allur er. Sem dæmi er það að hæstv. ráðherra leggur áherslu á að bílarnir hafi aðeins lent

í rigningu, en viðurkennt er að þeir lentu í sjóflóði. Flokksbróðir hæstv. ráðherra orðaði það einhvern tímann um framkvæmd máls að það væri löglegt en siðlaust og þetta mál er í samræmi við það.