16.02.1988
Efri deild: 56. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4603 í B-deild Alþingistíðinda. (3191)

60. mál, iðnaðarlög

Svavar Gestsson:

Herra forseti. Þar sem lagaákvæði um aðild útlendinga að atvinnurekstri hér á landi eru í endurskoðun og þar sem varasamt er að spretta upp iðnaðarlögum með þeim hætti sem hér er gert ráð fyrir tel ég eðlilegt að vísa málinu til ríkisstjórnarinnar og segi já.