25.02.1988
Sameinað þing: 50. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4854 í B-deild Alþingistíðinda. (3346)

237. mál, raforkuverð

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Ég tel að þetta hafi verið þörf fsp. og sú umræða sem af henni hefur spunnist hlýtur að leiða hugann að því að hér í þinginu er að mínu mati vilji til að taka á þessu máli. Ég heyrði ekki betur en það væri einnig vilji hjá hæstv. iðnrh. að taka á þessu máli og verður að taka á því. Það er þá rétt að það komi fram hvar fyrirstaðan er ef það verður stöðvað.