25.02.1988
Sameinað þing: 50. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 4882 í B-deild Alþingistíðinda. (3391)

269. mál, Rás 2

Fyrirspyrjandi (Ingi Björn Albertsson):

Herra forseti. Ég vil aðeins þakka hæstv. ráðherra fyrir hans svör. Ég gat ekki betur heyrt á þeim en að til greina kæmi að hans mati að skoða þá möguleika sem ég bendi á með fsp. minni. Ég fagna því og vona að hann taki þá undir það þegar það kemur hér til umræðu.