02.03.1988
Efri deild: 64. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5320 í B-deild Alþingistíðinda. (3544)

317. mál, ráðstafanir í ríkisfjármálum 1988

Júlíus Sólnes:

Hæstv. forseti. Með þessari skerðingu á framlagi til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga er enn vegið að sveitarfélögunum í landinu. Hér er aftur vegið í sama knérunn. Ég er andvígur þessari aðför að sveitarfélögunum og segi nei.