03.03.1988
Sameinað þing: 54. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5399 í B-deild Alþingistíðinda. (3598)
305. mál, útgjöld vísitölufjölskyldu
Guðrún Helgadóttir:
Herra forseti. Vegna síðustu orða hæstv. ráðherra vil ég minna á þál. um könnun á launum og lífskjörum á Íslandi og í nálægum löndum sem var samþykkt hér á Alþingi 22. apríl 1986 og hljóðaði svo, með leyfi forseta:
„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta gera könnun á því hvort og að hvaða leyti laun og lífskjör eru lakari á Íslandi en í nálægum löndum og hverjar séu orsakir þess. Við framkvæmd könnunarinnar verði haft samráð við rannsóknarstofnanir Háskóla Íslands. Niðurstöður könnunarinnar skulu lagðar fyrir Alþingi á næsta reglulegu þingi“ sem var síðasta löggjafarþing.
Ég vil því leyfa mér að spyrja hæstv. ráðherra: Hvað líður þessari könnun? Er einhver vinna í gangi sem marktæk er til þess að hv. Alþingi fái upplýsingar um stöðu þessara mála?