03.03.1988
Sameinað þing: 54. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5407 í B-deild Alþingistíðinda. (3610)
307. mál, kosningarréttur Íslendinga erlendis
Dómsmálaráðherra (Jón Sigurðsson):
Hæstv. forseti. Hin mikla þátttaka í athugasemdunum örstuttu sýnir glöggt að hér er hreyft máli sem þm. láta sér annt um. Hvorki fleiri né færri en sex þm. hafa tekið þátt í þessum umræðum og það sýnir vel að það er vakandi áhugi á málinu og það bendir líka á að það þurfi að huga að endurskoðun á þessum framkvæmdaratriðum varðandi kosningalögin og um framkvæmd kosninganna. Ég er þakklátur fyrir þær ábendingar sem hér hafa komið fram. Eins og þm. e.t.v. rekur minni til kom fram í þingbyrjun að á vegum dómsmrn. væri í undirbúningi frv. til laga um breytingu á kosningalögum. Það eru einmitt atriði eins og þau sem hér eru til umræðu í dag sem ég sé ástæðu til að huga að og ég mun að sjálfsögðu hafa samband við þingflokkana á frumstigum þess máls, þ.e. þegar um eitthvað er að tala. Ég er þakklátur fyrir ábendingarnar og fullvissa hv. fyrirspyrjanda um að hún skildi það alveg rétt að minn vilji í þessu máli er jákvæður, að leita þarna leiðréttinga sem sanngjarnar teljast til að koma til móts við það fólk sem erlendis býr en telur sig fullgilda Íslendinga. En auðvitað verða að vera þarna einhver mörk þótt maður hafi samúð með þeim sjónarmiðum, sem fram komu í máli hv. 6. þm. Reykv., að ættjarðarástin gæti enst í 13 ár og kannski lengur. En ég heyrði að hv. 10. þm. Reykn. nefndi bara átta. En ekki ætla ég að fara að þrátta um það.