10.03.1988
Sameinað þing: 59. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5645 í B-deild Alþingistíðinda. (3779)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. kjörbréfanefndar (Jón Sæmundur Sigurjónsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur borist eitt erindi. Það er kjörbréf 1. varamanns Samtaka um kvennalista í Reykjaneskjördæmi, Önnu Ólafsdóttur Björnsson, sem taki sæti 10. þm. Reykn. Kristínar Halldórsdóttur. Kjörbréfanefnd hefur rannsakað þetta kjörbréf og leggur til að það verði samþykkt.