21.03.1988
Sameinað þing: 63. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5934 í B-deild Alþingistíðinda. (4054)
368. mál, samvinna Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði markaðsmála
Friðjón Þórðarson:
Herra forseti. Hér er til umræðu till. til þál. um samvinnu Íslands, Færeyja og Grænlands á sviði markaðsmála og viðskipta. Till. þessi er flutt af þeim alþm. sem valdir hafa verið í Vestnorræna þingmannaráðið. Þessir sexmenningar hafa nú nýlega komið saman og skipt með sér verkum.
Í tillögunni er rætt um að auka samstarf og samvinnu þessara þriggja eyþjóða. Auðvitað á þetta samstarf sér langa sögu á liðnum árum og öldum og nú í seinni tíð á sviði norrænnar samvinnu og Norðurlandaráðs. Ef rifjaðir eru upp einhverjir þættir þá má minnast á till. til þál. sem flutt var á 103. löggjafarþingi árið 1981. Þar var 1. flm., hv. 3. þm. Norðurl. e. Árni Gunnarsson, á ferð ásamt nokkrum öðrum og fjallaði sú tillaga um að auka samstarf þjóðanna. Samþykkt var þál. þess efnis á Alþingi 19. maí 1981, þar sem hvatt var til aukinnar samvinnu um sameiginleg hagsmunamál þessara eylanda. Það fór svo að sendinefndir þm. frá Lögþingi Færeyinga, Landsþingi Grænlendinga og Alþingi Íslendinga stofnuðu raunverulega þessi samtök á fundi í Nuuk í Grænlandi dagana 23.–24. sept. 1985. Síðan hefur þetta samstarf farið fram með eðlilegum hætti.
Það er full ástæða til að efla þetta samstarf. Þessir nágrannar hafa vilja til þess að vinna saman og geta unnið saman meira en þeir hafa gert svo að ég sé ekki ástæðu til annars en mæla með því að þessi mál verði athuguð nánar, þetta samstarf aukið og eflt og þessi tillaga samþykkt.