21.03.1988
Sameinað þing: 63. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 5943 í B-deild Alþingistíðinda. (4061)

379. mál, réttindi og skyldur á vinnumarkaði

Flm. (Anna Ólafsdóttir Björnsson):

Herra forseti. Svo sem sjá má á þessari þáltill. er henni fyrst og fremst beint til fólks utan hefðbundinna stéttarfélaga og eins og hv. 9. þm. Reykn. og hv. 3. þm. Vestf. bentu á eru margar þessar upplýsingar tiltækar en gallinn er sá að þeim hefur ekki verið miðlað og sú er ástæða þessarar þáltill.