11.04.1988
Sameinað þing: 67. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6177 í B-deild Alþingistíðinda. (4230)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. kjörbréfanefndar (Jón Sæmundur Sigurjónsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur borist eitt erindi. Það er kjörbréf 1. varamanns Alþfl. í Reykjaneskjördæmi, Rannveigar Guðmundsdóttur, sem taki sæti Kjartans Jóhannssonar, 4. þm. Reykn. Kjörbréfanefnd hefur farið yfir þetta kjörbréf og leggur til að það verði samþykkt.

Þetta mun vera 37. varamaður sem tekur sæti á Alþingi á þessu þingi og um leið 100 þm. sem tekur sæti á 110. þingi Íslendinga.