12.04.1988
Efri deild: 75. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6227 í B-deild Alþingistíðinda. (4277)
402. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
Herra forseti. Ég stend fyrst og fremst upp til að þakka það traust í minn garð sem kom fram í orðum hv. 4. þm. Vesturl. Það kom fram í hans orðum að hann teldi það ekki endilega af hinu góða að taka þetta vald af félmrh. og af þessu má skilja að hann telur að málið sé í góðum höndum þegar ákvörðunarvaldið er í þessu efni í höndum félmrh. Ég er hins vegar hrædd um að sveitarstjórnirnar séu ekki alveg sammála hv. þm. vegna þess að sveitarstjórnarmenn lögðu ofurkapp á að fá þetta vald til sín aftur. Það kom fram á fundi hjá Sambandi ísl. sveitarfélaga sl. haust að þau lögðu mikla áherslu á að þarna yrði breyting á.
Ég þarf ekki að rifja það upp fyrir hv. þingdeildarmönnum að sú ákvörðun, sem var tekin á þessu ári að því er varðar innheimtuhlutfall á útsvari, var nokkuð gagnrýnd af sveitarstjórnarmönnum. Þó að þessi ákvörðun um innheimtuhlutfallið 6,7% hafi í raun þýtt fyrir sveitarfélögin hækkun að raungildi um 750 millj. kom það engu að síður fram hjá forráðamönnum Sambands ísl. sveitarfélaga að þessi ákvörðun mundi stefna fjárhag sveitarfélaganna í voða. Aftur á móti taldi til að mynda hæstv. fjmrh. að ég hefði verið helst til rausnarleg við sveitarfélögin. Ég held því að öll rök mæli með því að sveitarfélögin hafi þetta vald og taki þessa ákvörðun sjálf eins og hér er lagt til og ég held að þessi breyting muni tvímælalaust auka sjálfsforræði sveitarfélaga eins og stjórnarflokkarnir, og stjórnarandstaðan vissulega líka, stefna að.
Frv. var til umfjöllunar á nýlegum fulltrúaráðsfundi Sambands ísl. sveitarfélaga þar sem það var rætt eða drögin að frv., sem þá lágu fyrir, og ég veit ekki betur en að þeir fulltrúar sem sátu þann fund hafi verið sammála efni frv. og ekki hafi komið fram þar nein tillaga um aðra tilhögun þessara mála. Ég veit að þetta mál er nokkuð flókið viðfangs og það voru ýmsar leiðir skoðaðar í þessu efni, en þetta var sú leið sem menn urðu sammála um að farin yrði.
Kosturinn í þessu er vissulega sá að sveitarfélögin fá strax til sín skil á útsvarinu sem þau leggja á. Það er kosturinn í þessari tillögu sem hér er lögð fram og síðan kemur þessi jöfnun til eftir á, árið á eftir, þannig að þeir sem hafa greitt of mikið fá greitt til baka, en með sama hætti og uppgjör fer fram á öðrum þáttum staðgreiðslukerfisins verður það staðgreiðslukerfið sem mundi þá leggja á eftir á, staðgreiðslukerfið sjálft, ef því væri að skipta að um væri að ræða hjá einhverjum sveitarfélögum hærri útsvarsálagningu en innheimtuhlutfallið sem er ákveðið hverju sinni.
Herra forseti. Ég vænti þess að frv. nái fram að ganga og ég þakka þær undirtektir að öðru leyti sem það hefur fengið við þessa umræðu.