12.04.1988
Neðri deild: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6242 í B-deild Alþingistíðinda. (4292)

293. mál, áfengislög

Forseti (Jón Kristjánsson):

Það er rétt að 1. flm. þessa máls fékk leyfi forseta til að hverfa af vettvangi um hríð. Ég mun fresta umræðu og verða við þeim tilmælum og af minni hálfu munu engin ummæli fylgja þar um töf, enda hef ég aldrei haft slík ummæli. Þau eru ekki frá mér komin ef þau ummæli hafa verið úti í þjóðfélaginu. En mér finnst sjálfsagt að verða við þessu og mun ekki hafa frekari orð þar um.