12.04.1988
Neðri deild: 74. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6249 í B-deild Alþingistíðinda. (4304)

435. mál, gildistaka staðgreiðslu opinberra gjalda

Fjármálaráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingu á lögum nr. 46/1987, um gildistöku laga um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum. Þetta er einfalt mál í sniðum. Í 1. gr. er kveðið svo á um að þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 68. gr. tekjuskattslaga skal óráðstafaður persónuafsláttur, sem nýtist til greiðslu eignarskatts manna á gjaldárinu 1988, ekki vera hærri en 38 021 kr. Þetta þýðir á mannamáli að þeir sem nýta alla þessa upphæð til greiðslu eignarskatts borga ekki eignarskatt af hreinni eign allt að 6 millj. kr. hjá einstaklingi og tvöfaldri þeirri upphæð hjá hjónum. Í þessu felst á mæltu máli að einkum og sér í lagi sá hópur skattgreiðenda sem á skuldlitla eign en er tekjulágur, sem oft á við um ýmsa hópa eldri samborgara okkar, mun, ef þetta frv. verður að lögum, njóta við það bættra kjara.

Þegar lögin um staðgreiðslu opinberra gjalda voru samþykkt á sl. ári var í 42. gr. laganna gert ráð fyrir því að lögin kæmu ekki til framkvæmda fyrr en Alþingi hefði sett sérstök lög um gildistöku þeirra. Þetta var nýmæli í íslenskri löggjöf, en þessi háttur hefur tíðkast nokkuð með grannþjóðum vorum. Frv. sem hér er til umræðu fjallar um breytingu á lögum um gildistöku um staðgreiðslu opinberra gjalda. Í 2. mgr. laganna er ákveðið að óráðstafaður persónuafsláttur nýtist ekki til greiðslu eignarskatts á árinu 1988. Þetta ákvæði var sett til samræmis við þær reglur sem gilda í staðgreiðslu, en samkvæmt þeim mundi persónuafsláttur ekki ganga til greiðslu eignarskatts. Þegar fyrirframgreiðsla á árinu 1988 var ákveðin í byrjun þessa árs kom í ljós að ýmsir aðilar fengu fyrirframálagningu vegna eignarskatts sem ekki höfðu greitt eignarskatt áður, m.a. ellilífeyrisþegar. Þar með var ákveðið að taka þetta ákvæði til athugunar. Ástæðan fyrir þessu er sú að hjá þeim sem hafa verið undir skattleysismörkum hefur persónuafsláttur gengið til greiðslu á eignarskatti á árum áður.

Í þessu frv. er m.ö.o. lagt til að hluti af ónýttum persónuafslætti skuli nýtast til greiðslu eignarskatts á árinu 1988 og þá miðað við þessa fjárhæð að hámarki 38 021 kr. sem hefur í för með sér skattfrelsismörk eignarskatts af hreinni eign allt að 6 millj. kr. hjá einstaklingi. Þessi breyting hefur það hins vegar ekki í för með sér að slíkt hið sama gildi á næsta ári og verður því að taka það mál til sérstakrar athugunar áður en kemur til álagningar á árinu 1989.

Herra forseti. Ég held að um þetta mál sé ekki mikið meira að segja að svo stöddu. Ég legg til að þessu máli verði vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.