05.11.1987
Efri deild: 8. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 750 í B-deild Alþingistíðinda. (450)
70. mál, Norræni fjárfestingarbankinn
Sjávarútvegsráðherra (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um heimild fyrir ríkisstjórnina til að auka hlutafé Íslands í Norræna fjárfestingarbankanum í forföllum samstarfsráðherrans Matthíasar Á. Mathiesen, en ég gegni fyrir hann í veikindum hans.
Hér er lagt til að ríkisstjórnin fái heimild til að auka hlutafé Íslands í Norræna fjárfestingarbankanum, en eins og fram kemur í grg. með þessu lagafrv. er gert ráð fyrir að þetta hlutafé verði tvöfaldað.
Ég ætla ekki að fjölyrða um þetta mál. Um það hefur verið mjög góð samstaða hér á landi, enda Norræni fjárfestingarbankinn gagnað okkur mjög vel í ýmsum málum. Hann hefur lánað hér til margra hluta og með aðild okkar að honum eigum við góðan aðgang að alþjóðlegum fjármálamörkuðum, en banki þessi er orðinn mjög traustur og er því í góðri samkeppnisstöðu til að fá fjármagn á alþjóðlegum mörkuðum.
Ég vísa að öðru leyti til grg. og athugasemda með frv. þessu og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og fjh.- og viðskn.