20.04.1988
Efri deild: 78. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6648 í B-deild Alþingistíðinda. (4595)

434. mál, ríkisábyrgðir

Fjármálaráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frv. um breytingar á lögum nr. 37 frá 1961, um ríkisábyrgðir, með síðari breytingum. Frv. fjallar annars vegar um hækkun áhættugjalds vegna veittra ríkisábyrgða og hins vegar um innheimtu ábyrgðargjalds af erlendum skuldbindingum þeirra aðila sem njóta ábyrgðar ríkissjóðs vegna eignaraðildar hans eða af öðrum ástæðum.

Frv. felur ekki í sér neinar efnisbreytingar frá ákvæðum V. og VI. kafla brbl. nr. 68 frá 1987, um ráðstafanir í fjármálum. Brbl. fjölluðu um breytingar á ýmsum lögum sem undir fjmrh. heyra auk ákvæða um nýja tekjustofna fyrir ríkissjóð.

Eins og kunnugt er var frv. til staðfestingar á umræddum brbl. lagt fram á sl. hausti. Það frv. hefur ekki verið afgreitt. Mál hafa skipast þannig að ákvæði II.–IV. kafla og VII. kafla þeirra laga hafa verið afnumin þar sem þau höfðu verið felld inn í aðra löggjöf þar sem þau eiga réttilega heima samkvæmt efni sínu. Í ljósi þessa hefur sá kostur verið valinn að flytja sérstök frv. um efni þeirra þriggja kafla sem eftir standa af brbl. Með þessum hætti er öllum efnisatriðum brbl. komið fyrir í viðeigandi sérlögum og þar með komið í veg fyrir að þau festist í sessi í formi bandorms svokallaðs.

Frv. þetta, annað tveggja frv. sem flutt eru í framangreindum tilgangi, er efnislega samhljóða V. og VI. kafla brbl. frá liðnu sumri. Hins vegar hefur orðalagi og uppsetningu verið breytt nokkuð í því skyni að gera ákvæðin skýrari en þó hvergi vikið frá efni brbl.

Að því er breytingar varðar hefur verið stuðst við þá reynslu sem er komin á um gjaldtöku þessa, svo og framkvæmdareglur sem mótaðar hafa verið.

Ég tel ekki ástæðu til þess að fjölyrða frekar um þetta mál og legg því til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.