20.04.1988
Efri deild: 78. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6672 í B-deild Alþingistíðinda. (4619)

Frumvarp til áfengislaga

Forseti (Guðrún Agnarsdóttir):

Nú vil ég biðja alla hv. þingdeildarmenn, úr báðum deildum reyndar, að stilla skap sitt og stytta mál sitt því að við eigum nú að vera mætt á þingflokksfundi. Ég vil ítreka þá athugasemd sem ég gerði áðan. Hér hafa farið fram hógværar, stuttar og málefnalegar umræður um þetta mál.