25.04.1988
Sameinað þing: 71. fundur, 110. löggjafarþing.
Sjá dálk 6685 í B-deild Alþingistíðinda. (4656)

Varamenn taka þingsæti

Frsm. kjörbréfanefndar (Ólafur G. Einarsson):

Herra forseti. Kjörbréfanefnd hefur haft til athugunar kjörbréf Sigbjörns Gunnarssonar, 1. varamanns Alþfl. í Norðurlandskjördæmi eystra, en óskað er eftir að hann taki sæti hv. þm. Árna Gunnarssonar sem vegna veikinda getur ekki sótt þingfundi á næstunni. Kjörbréfanefnd leggur einróma til að kjörbréfið verði samþykkt.